VSK-reiknivél
Ertu yfir VSK-mörkunum?
Seljir þú fyrir meira en 2.000.000 kr. án VSK á tólf mánuðum þarftu að vera á VSK-skrá. Sláðu inn söluna og sjáðu hvar þú stendur.
Svona er talið
- Mörkin miðast við hverja tólf mánuði í röð, ekki almanaksárið, og þú ert yfir þeim þegar salan er meiri en 2.000.000 kr.
- Aðeins skattskyld sala telst með, og hún er talin án VSK.
- Skráningin á að berast áður en salan fer yfir mörkin, um leið og þér má vera ljóst að hún muni gera það. Enginn frestur er gefinn eftir á.
Byggt á 4. og 5. gr. laga um virðisaukaskatt og leiðbeiningum Skattsins. Reiknivélin er til leiðbeiningar og kemur ekki í stað ráðgjafar.
Einyrkinn fylgist með þessu fyrir þig, frítt.
Sendu reikningana úr Einyrkjanum og sjáðu söluna síðustu tólf mánuði, talda upp á dag. Fari hún yfir mörkin sérðu það strax á yfirlitinu.